1
Jóhannesarguðspjall 6:35
Biblían (2007)
BIBLIAN07
Jesús sagði þeim: „Ég er brauð lífsins. Þann mun ekki hungra sem til mín kemur og þann aldrei þyrsta sem á mig trúir.
Параўнаць
Даследуйце Jóhannesarguðspjall 6:35
2
Jóhannesarguðspjall 6:63
Það er andinn sem lífgar, maðurinn án hans megnar ekkert. Orðin sem ég hef talað til yðar, þau eru andi og þau eru líf.
Даследуйце Jóhannesarguðspjall 6:63
3
Jóhannesarguðspjall 6:27
Aflið yður eigi þeirrar fæðu sem eyðist heldur þeirrar fæðu sem varir til eilífs lífs og Mannssonurinn mun gefa yður. Því að faðirinn, sjálfur Guð, hefur veitt honum vald sitt.“
Даследуйце Jóhannesarguðspjall 6:27
4
Jóhannesarguðspjall 6:40
Því sá er vilji föður míns að hver sem sér soninn og trúir á hann hafi eilíft líf og ég mun reisa hann upp á efsta degi.“
Даследуйце Jóhannesarguðspjall 6:40
5
Jóhannesarguðspjall 6:29
Jesús svaraði þeim: „Það er verk Guðs að þér trúið á þann sem hann sendi.“
Даследуйце Jóhannesarguðspjall 6:29
6
Jóhannesarguðspjall 6:37
Allt sem faðirinn gefur mér mun koma til mín og þann sem til mín kemur mun ég alls eigi brott reka.
Даследуйце Jóhannesarguðspjall 6:37
7
Jóhannesarguðspjall 6:68
Símon Pétur svaraði honum: „Drottinn, til hvers ættum við að fara? Þú hefur orð eilífs lífs
Даследуйце Jóhannesarguðspjall 6:68
8
Jóhannesarguðspjall 6:51
Ég er hið lifandi brauð sem steig niður af himni. Hver sem etur af þessu brauði mun lifa að eilífu. Og brauðið er líkami minn sem ég gef heiminum til lífs.“
Даследуйце Jóhannesarguðspjall 6:51
9
Jóhannesarguðspjall 6:44
Enginn getur komið til mín nema faðirinn, sem sendi mig, laði hann og ég mun reisa hann upp á efsta degi.
Даследуйце Jóhannesarguðspjall 6:44
10
Jóhannesarguðspjall 6:33
Brauð Guðs er sá sem stígur niður af himni og gefur heiminum líf.“
Даследуйце Jóhannesarguðspjall 6:33
11
Jóhannesarguðspjall 6:48
Ég er brauð lífsins.
Даследуйце Jóhannesarguðspjall 6:48
12
Jóhannesarguðspjall 6:11-12
Nú tók Jesús brauðin, gerði þakkir og skipti þeim út til þeirra sem þar sátu, og eins af fiskunum, svo mikið sem þeir vildu. Þegar fólkið var orðið mett segir Jesús við lærisveina sína: „Safnið saman leifunum svo ekkert spillist.“
Даследуйце Jóhannesarguðspjall 6:11-12
13
Jóhannesarguðspjall 6:19-20
Þegar þeir höfðu róið hér um bil tuttugu og fimm eða þrjátíu skeiðrúm sáu þeir Jesú gangandi á vatninu og nálgast bátinn. Þeir urðu hræddir en hann sagði við þá: „Það er ég, óttist eigi.“
Даследуйце Jóhannesarguðspjall 6:19-20
Стужка
Біблія
Планы чытання
Відэа