Svo bar við, er hann var í einni borginni, að þar var maður altekinn líkþrá. Hann sá Jesú, féll fram á ásjónu sína og bað hann: “Herra, ef þú vilt, getur þú hreinsað mig.”
Jesús rétti út höndina, snart hann og mælti: “Ég vil, verð þú hreinn!” Jafnskjótt hvarf af honum líkþráin.