Fyrsta Mósebók 6:1-4

Fyrsta Mósebók 6:1-4 BIBLIAN81

Er mönnunum tók að fjölga á jörðinni og þeim fæddust dætur, sáu synir Guðs, að dætur mannanna voru fríðar, og tóku sér konur meðal þeirra, allar sem þeim geðjuðust. Þá sagði Drottinn: “Andi minn skal ekki ævinlega búa í manninum, með því að hann einnig er hold. Veri dagar hans nú hundrað og tuttugu ár.” Á þeim tímum voru risarnir á jörðinni, og einnig síðar, er synir Guðs höfðu samfarir við dætur mannanna og þær fæddu þeim sonu. Það eru kapparnir, sem í fyrndinni voru víðfrægir.