1
Lúkasarguðspjall 6:38
Biblían (2007)
Gefið og yður mun gefið verða. Góður mælir, troðinn, skekinn, fleytifullur mun lagður í skaut yðar. Því með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður aftur mælt verða.“
Confronta
Esplora Lúkasarguðspjall 6:38
2
Lúkasarguðspjall 6:45
Góður maður ber gott fram úr góðum sjóði hjarta síns en vondur maður ber vont fram úr vondum sjóði. Af gnægð hjartans mælir munnur hans.
Esplora Lúkasarguðspjall 6:45
3
Lúkasarguðspjall 6:35
Nei, elskið óvini yðar og gerið gott og lánið án þess að vænta nokkurs í staðinn, og laun yðar munu verða mikil og þér verða börn Hins hæsta því að hann er góður við vanþakkláta og vonda.
Esplora Lúkasarguðspjall 6:35
4
Lúkasarguðspjall 6:36
Verið miskunnsöm eins og faðir yðar er miskunnsamur.
Esplora Lúkasarguðspjall 6:36
5
Lúkasarguðspjall 6:37
Dæmið ekki og þér munuð eigi verða dæmd. Sakfellið eigi og þér munuð eigi verða sakfelld. Fyrirgefið öðrum og Guð mun fyrirgefa yður.
Esplora Lúkasarguðspjall 6:37
6
Lúkasarguðspjall 6:27-28
En ég segi yður er á mig hlýðið: Elskið óvini yðar, gerið þeim gott sem hata yður, blessið þá sem bölva yður og biðjið fyrir þeim er misþyrma yður.
Esplora Lúkasarguðspjall 6:27-28
7
Lúkasarguðspjall 6:31
Og eins og þér viljið að aðrir menn geri við yður, svo skuluð þér og þeim gera.
Esplora Lúkasarguðspjall 6:31
8
Lúkasarguðspjall 6:29-30
Slái þig einhver á kinnina skaltu og bjóða hina og taki einhver yfirhöfn þína skaltu ekki varna honum að taka kyrtilinn líka. Gef þú hverjum sem biður þig og ef einhver tekur frá þér það sem þú átt þá skaltu ekki krefja hann um það aftur.
Esplora Lúkasarguðspjall 6:29-30
9
Lúkasarguðspjall 6:43
Því að ekki er til gott tré er beri slæman ávöxt né heldur slæmt tré er beri góðan ávöxt.
Esplora Lúkasarguðspjall 6:43
10
Lúkasarguðspjall 6:44
En hvert tré þekkist af ávexti sínum enda lesa menn ekki fíkjur af þistlum né vínber af þyrnirunni.
Esplora Lúkasarguðspjall 6:44
Home
Bibbia
Piani
Video