YouVersion Logo
Search Icon

Postulasagan 11

11
Frásögn Péturs
1En postularnir og söfnuðirnir í Júdeu#11.1 Orðrétt: og bræðurnir í Júdeu. heyrðu að heiðingjarnir hefðu einnig tekið við orði Guðs. 2Þegar Pétur kom upp til Jerúsalem deildu umskurnarmennirnir á hann og sögðu: 3„Þú hefur farið inn til óumskorinna manna og etið með þeim.“ 4En Pétur sagði þeim þá alla söguna frá rótum og mælti:
5„Ég var að biðjast fyrir í borginni Joppe og sá í sýn hlut nokkurn koma niður, eins og stór dúkur væri látinn síga á fjórum skautum frá himni, og hann kom til mín. 6Ég starði á hann og hugði að og sá þá ferfætt dýr jarðar, villidýr, skriðdýr og fugla himins, 7og ég heyrði rödd segja við mig: Slátra nú, Pétur, og et! 8En ég sagði: Nei, Drottinn, engan veginn því að aldrei hefur neitt vanheilagt né óhreint komið mér í munn. 9Í annað sinn sagði rödd af himni: Eigi skalt þú kalla það vanheilagt sem Guð hefur lýst hreint! 10Þetta gerðist þrem sinnum og aftur var allt dregið upp til himins. 11Samstundis stóðu þrír menn við húsið sem ég var í,#11.11 Annar lesháttur: sem við vorum í. sendir til mín frá Sesareu. 12Og andinn sagði mér að fara með þeim hiklaust. Þessir sex bræður urðu mér einnig samferða og við gengum inn í hús mannsins. 13Hann sagði okkur hvernig hann hefði séð engil standa í húsi sínu er sagði: Send þú til Joppe og lát sækja Símon er kallast Pétur. 14Hann mun mæla til þín orð sem munu frelsa þig og allt heimili þitt. 15En þegar ég var farinn að tala kom heilagur andi yfir þá eins og yfir okkur í upphafi. 16Ég minntist þá orða Drottins er hann sagði: Jóhannes skírði með vatni en þið skuluð skírast með heilögum anda. 17Fyrst Guð gaf þeim nú sömu gjöf og okkur er við tókum trú á Drottin Jesú Krist, hvernig var ég þá þess umkominn að standa gegn Guði?“
18Þegar þeir heyrðu þetta stilltust þeir og þeir vegsömuðu Guð og sögðu: „Guð hefur einnig gefið heiðingjunum kost á að snúa sér til sín og öðlast líf.“
Söfnuðurinn í Antíokkíu
19Þeir sem dreifst höfðu vegna ofsóknarinnar sem varð út af Stefáni fóru allt til Fönikíu, Kýpur og Antíokkíu. En Gyðingum einum fluttu þeir orðið. 20Nokkrir þeirra voru frá Kýpur og Kýrene og er þeir komu til Antíokkíu tóku þeir einnig að tala til Grikkja og boða þeim fagnaðarerindið um Drottin Jesú. 21Og hönd Drottins var með þeim og mikill fjöldi tók trú og sneri sér til Drottins.
22Og fregnin um þá barst til eyrna safnaðarins í Jerúsalem og hann sendi Barnabas til Antíokkíu. 23Þegar hann kom og sá hvað Guð hafði sýnt þeim mikla náð gladdist hann og hvatti alla til að halda sér við Drottin með einlægu hjarta. 24Barnabas var góður maður, fullur af heilögum anda og trú. Og mikill fjöldi manna tók trú á Drottin og bættist við söfnuðinn. 25Þá fór Barnabas til Tarsus að leita Sál uppi. 26Þegar hann hafði fundið hann fór hann með hann til Antíokkíu. Þeir voru síðan saman heilt ár í söfnuðinum og kenndu fjölda fólks. Í Antíokkíu voru lærisveinarnir fyrst kallaðir kristnir.
27Á þessum dögum komu spámenn frá Jerúsalem til Antíokkíu. 28Einn þeirra, Agabus að nafni, steig fram og af gift andans sagði hann fyrir að mikil hungursneyð mundi koma yfir alla heimsbyggðina. Kom það fram á dögum Kládíusar. 29Lærisveinarnir í Antíokkíu samþykktu þá að hver þeirra skyldi eftir efnum senda nokkuð til hjálpar lærisveinunum#11.29 Orðrétt: bræðrunum. sem bjuggu í Júdeu. 30Þetta gerðu þeir og sendu það til öldunganna með þeim Barnabasi og Sál.

Currently Selected:

Postulasagan 11: BIBLIAN07

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

Video for Postulasagan 11