Jóhannesarguðspjall 11
11
Lasarus deyr
1Maður sá var sjúkur er Lasarus hét, frá Betaníu, þorpi Maríu og Mörtu, systur hennar. 2En María var sú er smurði Drottin smyrslum og þerraði fætur hans með hári sínu. Bróðir hennar, Lasarus, var sjúkur. 3Nú gerðu systurnar Jesú orðsending: „Drottinn, sá sem þú elskar er sjúkur.“
4Þegar hann heyrði það mælti hann: „Þessi sótt er ekki banvæn heldur Guði til dýrðar til þess að Guðs sonur vegsamist hennar vegna.“
5Jesús elskaði þau Mörtu og systur hennar og Lasarus. 6Þegar hann frétti að hann væri veikur var hann samt um kyrrt á sama stað í tvo daga. 7Að þeim liðnum sagði hann við lærisveina sína: „Förum aftur til Júdeu.“
8Lærisveinarnir sögðu við hann: „Rabbí, nýlega voru menn#11.8 Orðrétt: Gyðingar. þar að því komnir að grýta þig og ætlar þú þangað aftur?“
9Jesús svaraði: „Eru ekki stundir dagsins tólf? Sá sem gengur um að degi hrasar ekki því hann sér ljós þessa heims. 10En sá sem gengur um að nóttu hrasar því hann hefur ekki ljósið í sér.“
11Þetta mælti hann og sagði síðan við þá: „Lasarus, vinur okkar, er sofnaður. En nú fer ég að vekja hann.“
12Þá sögðu lærisveinar hans: „Drottinn, ef hann er sofnaður batnar honum.“ 13En Jesús talaði um dauða hans. Þeir héldu hins vegar að hann ætti við venjulegan svefn. 14Þá sagði Jesús þeim berum orðum: „Lasarus er dáinn 15og ykkar vegna fagna ég því að ég var þar ekki, til þess að þið trúið. En förum nú til hans.“
16Tómas, sem nefndist tvíburi, sagði þá við hina lærisveinana: „Við skulum fara líka til að deyja með honum.“
Ég er upprisan og lífið
17Þegar Jesús kom varð hann þess vís að Lasarus hafði verið fjóra daga í gröfinni. 18Betanía var nálægt Jerúsalem, hér um bil fimmtán skeiðrúm#11.18 Fimmtán skeiðrúm eru tæpir þrír kílómetrar. þaðan.
19Margir Gyðingar voru komnir til Mörtu og Maríu til að hugga þær eftir bróðurmissinn.
20Þegar Marta frétti að Jesús væri að koma fór hún á móti honum en María sat heima. 21Marta sagði við Jesú: „Drottinn, ef þú hefðir verið hér væri bróðir minn ekki dáinn. 22En einnig nú veit ég að Guð mun gefa þér hvað sem þú biður hann um.“
23Jesús segir við hana: „Bróðir þinn mun upp rísa.“ 24Marta segir: „Ég veit að hann rís upp í upprisunni á efsta degi.“
25Jesús mælti: „Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi. 26Og hver sem lifir og trúir á mig mun aldrei að eilífu deyja. Trúir þú þessu?“
27Hún segir við hann: „Já, Drottinn. Ég trúi að þú sért Kristur, Guðs sonur, sem koma skal í heiminn.“
28Að svo mæltu fór hún, kallaði á Maríu systur sína og sagði í hljóði: „Meistarinn er hér og vill finna þig.“ 29Þegar María heyrði þetta reis hún skjótt á fætur og fór til hans. 30En Jesús var ekki enn kominn til þorpsins heldur var hann enn á þeim stað þar sem Marta hafði mætt honum. 31Fólkið,#11.31 Orðrétt: Gyðingarnir. sem var heima hjá Maríu að hugga hana, sá að hún stóð upp í skyndi og gekk út og fór það á eftir henni. Það hugði að hún hefði farið til grafarinnar að gráta þar.
32María kom þangað sem Jesús var og er hún sá hann féll hún honum til fóta og sagði við hann: „Drottinn, ef þú hefðir verið hér væri bróðir minn ekki dáinn.“
33Þegar Jesús sá hana gráta og þau#11.33 Orðrétt: Gyðingana. gráta, sem með henni komu, komst hann við, varð djúpt hrærður 34og sagði: „Hvar hafið þið lagt hann?“
Þau sögðu: „Drottinn, kom þú og sjá.“ 35Þá grét Jesús.
36Þau#11.36 Orðrétt: Gyðingar. sögðu: „Sjá, hversu hann hefur elskað hann!“
37En nokkrir sögðu: „Gat ekki sá maður sem opnaði augu hins blinda einnig varnað því að þessi maður dæi?“
38Jesús varð aftur mjög djúpt hrærður og fór til grafarinnar. Hún var hellir og steinn fyrir. 39Jesús segir: „Takið steininn frá!“
Marta, systir hins dána, segir við hann:
„Drottinn, það er komin nálykt af honum, það er komið á fjórða dag.“
40Jesús segir við hana: „Sagði ég þér ekki: Ef þú trúir munt þú sjá dýrð Guðs?“ 41Nú var steinninn tekinn frá. En Jesús hóf upp augu sín og mælti: „Faðir, ég þakka þér að þú hefur bænheyrt mig. 42Ég vissi að sönnu að þú heyrir mig ávallt en ég sagði þetta vegna mannfjöldans sem stendur hér umhverfis til þess að fólkið trúi að þú hafir sent mig.“ 43Að svo mæltu hrópaði hann hárri röddu: „Lasarus, kom út!“ 44Hinn dáni kom út vafinn líkblæjum á fótum og höndum og með sveitadúk bundinn um andlitið. Jesús segir við fólkið: „Leysið hann og látið hann fara.“
Hann skyldi deyja
45Margir Gyðingar sem komnir voru til Maríu og sáu það sem Jesús gerði tóku nú að trúa á hann. 46En nokkrir þeirra fóru til farísea og sögðu þeim hvað hann hafði gert. 47Æðstu prestarnir og farísearnir kölluðu þá saman ráðið og sögðu: „Hvað eigum við að gera? Þessi maður gerir mörg tákn. 48Ef við leyfum honum að halda svo áfram munu allir trúa á hann og þá koma Rómverjar og taka bæði helgidóm okkar og þjóð.“
49En einn þeirra, Kaífas, sem það ár var æðsti prestur, sagði við þá: „Þið vitið ekkert 50og hugsið ekkert um það að ykkur er betra að einn maður deyi fyrir lýðinn en að öll þjóðin tortímist.“ 51Hann tók þetta ekki upp hjá sjálfum sér en þar sem hann var æðsti prestur það ár gat hann mælt af spámannlegri andagift að Jesús mundi deyja fyrir þjóðina 52og ekki fyrir þjóðina eina heldur og til að safna saman í eitt dreifðum börnum Guðs. 53Upp frá þeim degi voru þeir ráðnir í að taka hann af lífi.
54Jesús gekk því ekki lengur um á almannafæri í Júdeu#11.54 Orðrétt: meðal Gyðinga. heldur fór hann þaðan til staðar í grennd við eyðimörkina, í þorp sem heitir Efraím, og þar dvaldist hann með lærisveinum sínum.
55Nú nálguðust páskar Gyðinga og menn komu hvaðanæva upp til Jerúsalem fyrir páskana til að hreinsa sig. 56Menn leituðu að Jesú og sögðu sín á milli í helgidóminum: „Hvað haldið þið? Skyldi hann ekki koma til hátíðarinnar?“ 57En æðstu prestar og farísear höfðu gefið út skipun um það að ef nokkur vissi hvar hann væri skyldi hann segja til svo að þeir gætu tekið hann.
Currently Selected:
Jóhannesarguðspjall 11: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy
Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007

: