Jóhannesarguðspjall 12
12
Jesús smurður
1Sex dögum fyrir páska kom Jesús til Betaníu þar sem Lasarus var, sá er hann vakti frá dauðum. 2Þar var honum búinn kvöldverður og Marta gekk um beina en Lasarus var einn þeirra sem að borði sátu með honum. 3Þá tók María pund af ómenguðum, dýrum nardussmyrslum og smurði fætur Jesú og þerraði með hári sínu fætur hans. En húsið fylltist ilmi smyrslanna. 4Segir þá Júdas Ískaríot, einn lærisveina hans, sá er mundi svíkja hann: 5„Hví voru þessi smyrsl ekki seld fyrir þrjú hundruð denara#12.5 Sjá Jóh 6.7. og gefin fátækum?“ 6Ekki sagði hann þetta af því að hann léti sér annt um fátæka heldur af því að hann var þjófur. Hann hafði pyngjuna og tók af því sem í hana var látið. 7Þá sagði Jesús: „Lát hana í friði. Hún hefur geymt þetta til greftrunardags míns. 8Fátæka hafið þið ætíð hjá ykkur en mig hafið þið ekki ávallt.“
9Nú frétti allur fjöldi Gyðinga af því að Jesús væri í Betaníu og þeir komu þangað, ekki aðeins hans vegna heldur og til að sjá Lasarus sem hann hafði vakið frá dauðum. 10Þá ákváðu æðstu prestarnir að taka einnig Lasarus af lífi 11því vegna hans sneru margir Gyðingar baki við þeim og fóru að trúa á Jesú.
Jesú fagnað
12Degi síðar frétti hinn mikli mannfjöldi, sem kominn var til hátíðarinnar, að Jesús væri að koma til Jerúsalem. 13Fólk tók þá pálmagreinar, fór út á móti honum og hrópaði:
„Hósanna!
Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins,
konungur Ísraels!“
14Jesús fann ungan asna og settist á bak honum, eins og skrifað er:
15Óttast ekki, dóttir Síon.
Konungur þinn kemur
og ríður ösnufola.
16Lærisveinar hans skildu þetta ekki í fyrstu en þegar Jesús var dýrlegur orðinn minntust þeir þess að þetta var ritað um hann og að þeir höfðu gert þetta fyrir hann.
17Nú vitnaði fólkið, sem með honum var, þegar hann kallaði Lasarus út úr gröfinni og vakti hann frá dauðum. 18Vegna þess fór einnig mannfjöldinn á móti honum því menn höfðu heyrt að hann hefði gert þetta tákn. 19Því sögðu farísear sín á milli: „Þið sjáið að þið ráðið ekki við neitt. Allur heimurinn eltir hann.“
Stundin komin
20Meðal þeirra sem fóru upp eftir til að biðjast fyrir á hátíðinni voru nokkrir Grikkir. 21Þeir komu til Filippusar, sem var frá Betsaídu í Galíleu, báðu hann og sögðu: „Herra, okkur langar að sjá Jesú.“
22Filippus fór og sagði Andrési það og síðan fóru þeir báðir og sögðu Jesú. 23Jesús svaraði þeim: „Stundin er komin að dýrð Mannssonarins verði opinber. 24Sannlega, sannlega segi ég yður: Ef hveitikornið fellur ekki í jörðina og deyr verður það áfram eitt. En ef það deyr ber það mikinn ávöxt. 25Sá sem elskar líf sitt glatar því en sá sem hatar líf sitt í þessum heimi mun varðveita það til eilífs lífs. 26Sá sem þjónar mér fylgi mér eftir og hvar sem ég er, þar mun og þjónn minn vera. Þann sem þjónar mér mun faðirinn heiðra.
27Nú er sál mín skelfd og hvað á ég að gera, á ég að segja: Faðir, frelsa mig frá þessari stundu? Nei, ég er kominn til þess að mæta þessari stundu: 28Faðir, ger nafn þitt dýrlegt!“
Þá kom rödd af himni: „Ég hef gert það dýrlegt og mun enn gera það dýrlegt.“
29Mannfjöldinn, sem hjá stóð og hlýddi á, sagði að þruma hefði riðið yfir. En aðrir sögðu: „Engill var að tala við hann.“
30Jesús svaraði: „Þessi rödd kom ekki mín vegna heldur yðar vegna. 31Nú gengur dómur yfir þennan heim. Nú skal höfðingja þessa heims út kastað. 32Og þegar ég verð hafinn upp frá jörðu mun ég draga alla til mín.“ 33Þetta sagði hann til að gefa til kynna með hvaða hætti hann ætti að deyja.
34Mannfjöldinn svaraði honum: „Lögmálið segir okkur að Kristur muni verða til eilífðar. Hvernig getur þú sagt að Mannssonurinn eigi að verða upp hafinn? Hver er þessi Mannssonur?“
35Þá sagði Jesús: „Skamma stund er ljósið enn á meðal yðar. Gangið meðan þér hafið ljósið svo að myrkrið hremmi yður ekki. Sá sem gengur í myrkri veit ekki hvert hann fer. 36Trúið á ljósið meðan þér hafið ljósið svo að þér verðið börn ljóssins.“
Vantrúin myrkur, trúin ljós
Þetta mælti Jesús, fór burt og duldist. 37Þótt hann hefði gert svo mörg tákn í allra augsýn trúðu menn ekki á hann 38svo að rættist orð Jesaja spámanns er hann mælti:
Drottinn, hver trúði boðun vorri
og hverjum varð armur Drottins opinber?
39Þess vegna gátu þeir ekki trúað enda segir Jesaja á öðrum stað:
40Hann hefur blindað augu þeirra
og forhert hjarta þeirra
að þeir sjái ekki með augunum
né skilji með hjartanu og snúi sér
og ég lækni þá.
41Jesaja sagði þetta af því að hann sá dýrð Jesú og talaði um hann.
42Samt trúðu margir á hann, jafnvel höfðingjar, en gengust ekki við því vegna faríseanna svo að þeir yrðu ekki samkundurækir. 43Þeir kusu heldur heiður manna en heiður frá Guði.
44En Jesús hrópaði: „Sá sem trúir á mig trúir ekki á mig heldur þann sem sendi mig 45og sá sem sér mig sér þann er sendi mig. 46Ég er ljós í heiminn komið svo að enginn, sem á mig trúir, sé áfram í myrkri. 47Ef nokkur heyrir orð mín og fer ekki eftir þeim þá dæmi ég hann ekki. Ég er ekki kominn til að dæma heiminn heldur til að frelsa heiminn. 48Sá sem hafnar mér og tekur ekki við orðum mínum hefur sinn dómara: Orðið, sem ég hef talað, verður dómari hans á efsta degi. 49Því að það sem ég tala kemur ekki frá sjálfum mér heldur hefur faðirinn, sem sendi mig, boðið mér hvað ég skuli segja og hvað ég skuli tala. 50Og ég veit að það sem hann býður er eilíft líf. Ég tala það eitt sem faðir minn hefur falið mér.“
Currently Selected:
Jóhannesarguðspjall 12: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy
Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007

: