Fyrsta Mósebók 15
15
Sáttmáli við Abram
1Eftir þessa atburði kom orð Drottins til Abrams í sýn: „Óttast þú ekki, Abram. Ég er skjöldur þinn. Laun þín munu mjög mikil verða.“
2Abram svaraði: „Drottinn Guð! Hvað getur þú gefið mér? Ég fer héðan barnlaus og erfingi húss míns verður Elíeser frá Damaskus.“ 3Og enn fremur mælti hann: „Sjá, þú hefur ekki gefið mér neitt afkvæmi og húskarl minn mun erfa mig.“
4Þá kom orð Drottins aftur til Abrams: „Ekki mun hann erfa þig heldur sá sem af þér mun getinn verða. Hann skal erfa þig.“
5Þá leiddi hann Abram út fyrir og mælti: „Líttu til himins og teldu stjörnurnar ef þú getur.“ Og hann sagði: „Svo margir munu niðjar þínir verða.“
6Og Abram trúði Drottni og hann reiknaði honum það til réttlætis.
7Og Drottinn sagði við hann: „Ég er Drottinn sem leiddi þig út frá Úr í Kaldeu til þess að gefa þér þetta land til eignar.“
8Abram svaraði: „Drottinn Guð, hvað hef ég til marks um að ég muni eignast það?“
9Drottinn svaraði honum: „Færðu mér þrevetra kvígu, þrevetra geit og þrevetra hrút, turtildúfu og dúfuunga.“
10Hann færði honum öll þessi dýr, hlutaði þau sundur í miðju og lagði hvern helminginn gegnt öðrum. En fuglana hlutaði hann ekki í tvennt. 11Flugu þá hræfuglar að ætinu en Abram fældi þá burt.
12Er sól var að ganga til viðar leið þungur svefnhöfgi á Abram og ótti og myrk skelfing kom yfir hann.
13Þá sagði Drottinn: „Það skaltu vita að niðjar þínir munu lifa sem landlausir aðkomumenn í landi sem þeir eiga ekki. Þeir munu þrælkaðir verða og þjáðir í fjögur hundruð ár. 14En ég mun vissulega kveða upp dóm yfir þjóðinni sem þrælkar þá og síðar munu þeir þaðan fara með mikinn fjárhlut. 15Og þú munt safnast til feðra þinna í friði og verða jarðaður í hárri elli. 16Í fjórða ættlið munu þeir snúa hingað aftur því að enn hafa Amorítar ekki fyllt mæli sektar sinnar.“
17Sólin gekk til viðar og myrkur skall á. Kom þá reykur sem úr ofni og eldslogi er leið fram á milli fórnarstykkjanna.
18Á þeim degi gerði Drottinn sáttmála við Abram og mælti: „Niðjum þínum gef ég þetta land, frá Egyptalandsá til fljótsins mikla, Efrats, 19land Keníta, Kenisíta, Kadmoníta, 20Hetíta, Peresíta, Refaíta, 21Amoríta, Kanverja, Gírgasíta og Jebúsíta.“
Jelenleg kiválasztva:
Fyrsta Mósebók 15: BIBLIAN07
Kiemelés
Megosztás
Másolás
Szeretnéd, hogy a kiemeléseid minden eszközödön megjelenjenek? Regisztrálj vagy jelentkezz be
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007

: