Fyrsta Mósebók 9
9
Sáttmáli Guðs við Nóa
1Guð blessaði Nóa og syni hans og sagði við þá: „Verið frjósamir, fjölgið ykkur og fyllið jörðina. 2Öll dýr jarðarinnar, allir fuglar loftsins, allt kvikt á jörðinni og allir fiskar sjávarins skulu óttast ykkur og hræðast. Á ykkar vald er þetta gefið. 3Allt sem hrærist og lifir skal vera ykkur til fæðu eins og var um grænu grösin en nú gef ég ykkur allt. 4En kjöts sem líf er enn í, það er blóðið, skuluð þið ekki neyta. 5Ég mun krefjast reikningsskapar fyrir blóð ykkar, líf ykkar, ég mun krefjast þess af sérhverri skepnu. Úr hendi manns mun ég krefjast reikningsskapar fyrir líf mannsins, af hverjum manni fyrir líf bróður hans.
6Hver sem úthellir blóði manns,
hans blóði skal og úthellt verða af manni,
því að í mynd sinni
skapaði Guð manninn.
7Verið frjósöm, fjölgið ykkur, verið fjölmenn á jörðinni og margfaldist á henni.“
8Guð sagði við Nóa og syni hans sem með honum voru: 9„Ég stofna nú til sáttmála við ykkur og niðja ykkar 10og allar lifandi skepnur sem með ykkur eru, bæði við fugla, búfé og öll dýr merkurinnar með ykkur, við allt sem út úr örkinni gekk, það er öll dýr merkurinnar. 11Ég stofna til sáttmála við ykkur: Aldrei framar skal allt hold tortímast í vatnsflóði. Aldrei framar mun flóð koma og eyða jörðina.“
12Og Guð sagði: „Þetta er tákn sáttmálans fyrir allar ókomnar aldir sem ég stofna til milli mín og ykkar og allra lifandi skepna sem hjá ykkur eru. 13Boga minn hef ég sett í skýin. Hann skal vera tákn sáttmálans milli mín og jarðarinnar. 14Þegar ég færi ský yfir jörðina og boginn sést í skýjunum 15mun ég minnast sáttmálans milli mín og ykkar og allra lifandi skepna, alls holds, og aldrei framar skal vatnið verða að flóði sem tortímir öllu lífi. 16Hverju sinni sem boginn stendur í skýjunum mun ég sjá hann og minnast hins eilífa sáttmála milli Guðs og allra lifandi vera, alls sem lifir á jörðinni.“
17Og Guð sagði við Nóa: „Þetta er tákn sáttmálans sem ég hef stofnað til milli mín og alls sem lifir á jörðinni.“
Synir Nóa
18Synir Nóa, er gengu úr örkinni, voru Sem, Kam og Jafet, en Kam var faðir Kanaans. 19Þessir voru þrír synir Nóa og frá þeim byggðist öll jörðin.
20Nói var akuryrkjumaður og fyrstur til að planta víngarð. 21Drakk hann af víninu og varð drukkinn og lá nakinn í tjaldi sínu. 22Kam, faðir Kanaans, sá nekt föður síns og sagði báðum bræðrum sínum frá sem úti voru. 23Þá tóku þeir Sem og Jafet skikkju, lögðu á herðar sér og gengu aftur á bak og huldu nekt föður síns. Þeir sneru sér undan og sáu ekki nekt hans.
24Nói vaknaði af vímunni og varð þess áskynja hvað yngsti sonur hans hafði gert honum. 25Hann mælti:
Bölvun hvíli á Kanaan.
Auvirðilegur þræll bræðra sinna sé hann.
26Og hann mælti:
Lofaður sé Drottinn,
Guð Sems.
Kanaan sé þræll Sems.
27Guð gefi Jafet mikið landrými
og láti hann búa í tjaldbúðum Sems
en Kanaan sé þræll þeirra.
28Nói lifði þrjú hundruð og fimmtíu ár eftir flóðið. 29Alls urðu dagar Nóa níu hundruð og fimmtíu ár. Þá andaðist hann.
Jelenleg kiválasztva:
Fyrsta Mósebók 9: BIBLIAN07
Kiemelés
Megosztás
Másolás
Szeretnéd, hogy a kiemeléseid minden eszközödön megjelenjenek? Regisztrálj vagy jelentkezz be
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007