Postulasagan 9
9
Sál fer til Damaskus
1Sál hélt enn áfram að æða um með líflátshótanir gegn lærisveinum Drottins. Nú fór hann á fund æðsta prestsins 2og beiddist bréfa af honum til samkundnanna í Damaskus að hann mætti flytja í böndum til Jerúsalem þá er hann kynni að finna og væru þessa vegar,#9.2 Vegur: kristin trú. hvort heldur karla eða konur. 3En þegar hann var á ferð sinni kominn í nánd við Damaskus leiftraði skyndilega um hann ljós af himni. 4Hann féll til jarðar og heyrði rödd segja við sig: „Sál, Sál, hví ofsækir þú mig?“
5En hann sagði: „Hver ert þú, Drottinn?“
Þá var svarað: „Ég er Jesús sem þú ofsækir. 6En statt upp og gakk inn í borgina og þér mun verða sagt hvað þú átt að gera.“ 7Förunautar hans stóðu orðlausir. Þeir heyrðu að vísu raustina en sáu engan. 8Sál reis á fætur en þegar hann lauk upp augunum sá hann ekkert. Þeir leiddu hann við hönd sér inn í Damaskus. 9Þrjá daga var hann sjónlaus og át hvorki né drakk.
10Í Damaskus var lærisveinn nokkur sem hét Ananías. Við hann sagði Drottinn í sýn: „Ananías.“
Hann svaraði: „Hér er ég, Drottinn.“
11Drottinn sagði við hann: „Far þegar í stræti það sem kallað er Hið beina og í húsi Júdasar skaltu spyrja eftir manni frá Tarsus, er heitir Sál. Hann er að biðja. 12Og hann hefur í sýn séð mann, Ananías að nafni, koma inn og leggja hendur yfir sig til þess að hann fái aftur sjón.“
13Ananías svaraði: „Drottinn, heyrt hef ég marga segja frá manni þessum, hve mikið illt hann hefur gert þínum heilögu í Jerúsalem. 14Og hér fer hann með vald frá æðstu prestunum að færa í bönd alla þá sem ákalla nafn þitt.“
15Drottinn sagði við hann: „Far þú, því að þennan mann hef ég valið mér að verkfæri til þess að bera nafn mitt fram fyrir heiðingja, konunga og börn Ísraels 16og ég mun sýna honum hversu mikið hann verður að þola vegna nafns míns.“
17Þá fór Ananías af stað, gekk inn í húsið og lagði hendur yfir hann og mælti: „Sál, bróðir, Drottinn Jesús hefur sent mig, sá er birtist þér á leið þinni hingað. Þú átt að fá aftur sjón þína og fyllast heilögum anda.“ 18Jafnskjótt var sem hreistur félli af augum hans, hann fékk aftur sjónina, stóð upp og lét þegar skírast. 19Síðan neytti hann matar og styrktist.
Sál prédikar í Damaskus
Sál var nokkra daga hjá lærisveinunum í Damaskus 20og tók þegar að prédika í samkunduhúsunum að Jesús væri sonur Guðs. 21Allir þeir sem heyrðu það undruðust stórum og sögðu: „Er þetta ekki maðurinn sem reyndi í Jerúsalem að útrýma þeim sem ákölluðu nafn Jesú? Kom hann ekki hingað til að fara með þá í böndum til æðstu prestanna?“ 22En Sál efldist æ meir og gerði þá Gyðinga sem bjuggu í Damaskus rökþrota er hann sannaði að Jesús væri Kristur.
23Að allmörgum dögum liðnum réðu Gyðingar með sér að taka hann af lífi. 24En Sál fékk vitneskju um ráðagerð þeirra. Þeir gættu borgarhliðanna nótt og dag til að ná lífi hans. 25En lærisveinarnir tóku hann um nótt og komu honum út fyrir borgarmúrinn með því að láta hann síga ofan í körfu.
26Þá er Sál kom til Jerúsalem reyndi hann að samlaga sig lærisveinunum en þeir hræddust hann allir og trúðu ekki að hann væri lærisveinn. 27En Barnabas tók hann að sér, fór með hann til postulanna og skýrði þeim frá hvernig hann hefði séð Drottin á veginum, hvað hann hefði sagt við hann og hversu einarðlega hann hefði talað í Jesú nafni í Damaskus. 28Dvaldist Sál nú með þeim í Jerúsalem, gekk þar út og inn og talaði einarðlega í nafni Drottins. 29Hann talaði og háði kappræður við grískumælandi Gyðinga en þeir leituðust við að ráða hann af dögum. 30Þegar söfnuðurinn#9.30 Orðrétt: bræðurnir. varð þess var fóru menn með hann til Sesareu og sendu hann áfram til Tarsus.
31Nú hafði kirkjan frið um alla Júdeu, Galíleu og Samaríu. Hún byggðist upp og lifði í guðsótta og óx við örvun og styrk heilags anda.
Pétur fer til Lýddu og Joppe
32Svo bar við er Pétur var að ferðast um og vitja allra að hann kom og til hinna heilögu sem áttu heima í Lýddu. 33Þar fann hann mann nokkurn, Eneas að nafni, er í átta ár hafði legið rúmfastur. Hann var lami. 34Pétur sagði við hann: „Eneas, Jesús Kristur læknar þig, statt upp og bú um þig.“ Jafnskjótt stóð hann upp. 35Allir sem áttu heima í Lýddu og Saron sáu hann og sneru sér til Drottins.
36Í Joppe var lærisveinn, kona að nafni Tabíþa, á grísku Dorkas.#9.36 Þ.e. hind. Hún var mjög góðgerðasöm og örlát við snauða. 37En á þeim dögum tók hún sótt og andaðist. Var hún lauguð og lögð í loftstofu. 38Nú er Lýdda í grennd við Joppe og höfðu lærisveinarnir heyrt að Pétur væri þar. Sendu þeir tvo menn til hans og báðu hann: „Kom án tafar til okkar.“ 39Pétur brá við og fór með þeim. Þegar þangað kom fóru þeir með hann upp í loftstofuna og allar ekkjurnar komu til hans grátandi og sýndu honum kyrtla og yfirhafnir sem Dorkas hafði gert meðan hún var hjá þeim. 40En Pétur lét alla fara út, féll á kné og baðst fyrir. Síðan sneri hann sér að líkinu og sagði: „Tabíþa, rís upp.“ En hún opnaði augun, sá Pétur og settist upp. 41Og hann rétti henni höndina og reisti hana á fætur, kallaði síðan á hina heilögu og ekkjurnar og leiddi hana fram lifandi. 42Þetta barst út um alla Joppe og margir tóku trú á Drottin. 43Var Pétur um kyrrt í Joppe allmarga daga hjá Símoni nokkrum sútara.
Currently Selected:
Postulasagan 9: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007