Jesús svaraði: “Æðst er þetta: ‘Heyr, Ísrael! Drottinn, Guð vor, hann einn er Drottinn. Og þú skalt elska Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum huga þínum og öllum mætti þínum.’ Annað er þetta: ‘Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.’ Ekkert boðorð annað er þessum meira.”