1
Lúkasarguðspjall 17:19
Biblían (2007)
Síðan mælti Jesús við hann: „Statt upp og far leiðar þinnar. Trú þín hefur bjargað þér.“
Confronta
Esplora Lúkasarguðspjall 17:19
2
Lúkasarguðspjall 17:4
Og þótt hann misgeri við þig sjö sinnum á dag og snúi sjö sinnum aftur til þín og segi: Ég iðrast, þá skalt þú fyrirgefa honum.“
Esplora Lúkasarguðspjall 17:4
3
Lúkasarguðspjall 17:15-16
En einn þeirra sneri aftur er hann sá að hann var heill orðinn og lofaði Guð hárri raustu. Hann féll fram að fótum Jesú og þakkaði honum. En hann var Samverji.
Esplora Lúkasarguðspjall 17:15-16
4
Lúkasarguðspjall 17:3
Hafið gát á sjálfum yður. Ef bróðir þinn syndgar, þá ávíta hann og ef hann sér að sér, þá fyrirgef honum.
Esplora Lúkasarguðspjall 17:3
5
Lúkasarguðspjall 17:17
Jesús sagði: „Urðu ekki allir tíu hreinir? Hvar eru hinir níu?
Esplora Lúkasarguðspjall 17:17
6
Lúkasarguðspjall 17:6
En Drottinn sagði: „Ef þér hefðuð trú eins og mustarðskorn gætuð þér sagt við mórberjatré þetta: Ríf þig upp með rótum og fest rætur í sjónum, og það mundi hlýða yður.
Esplora Lúkasarguðspjall 17:6
7
Lúkasarguðspjall 17:33
Sá sem vill sjá lífi sínu borgið mun týna því en sá sem týnir því mun öðlast líf.
Esplora Lúkasarguðspjall 17:33
8
Lúkasarguðspjall 17:1-2
Jesús sagði við lærisveina sína: „Eigi verður umflúið að menn séu tældir til falls en vei þeim sem því veldur. Betra væri honum að hafa mylnustein um hálsinn og vera varpað í hafið en að tæla einn af þessum smælingjum til falls.
Esplora Lúkasarguðspjall 17:1-2
9
Lúkasarguðspjall 17:26-27
Eins og var á dögum Nóa, svo mun og verða á dögum Mannssonarins: Menn átu og drukku, kvæntust og giftust allt til þess dags er Nói gekk í örkina og flóðið kom og tortímdi öllum.
Esplora Lúkasarguðspjall 17:26-27
Home
Bibbia
Piani
Video